|
|
11.09.2006 10:53:18 / Andri Snær
Þvílíkar gleðifréttir fyrir Íslenska knattspyrnu ef þetta verður
að veruleika, þetta er klárlega minn maður! Besti varnarmiðjumaður
okkar Íslendinga fyrr og síðar, það er bara þannig
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060911/IDROTTIR/109110024/1051
»
24.05.2006 17:41:03 / Andri Snær
Halló Arnór og Einar Logi
»
08.04.2006 12:07:57 / Andri Snær
Jæjajæjajæja......... Ætli það sé ekki löngu komið að því að
maður hendi hérna inn smá ferðasögu frá Londonferðinni hjá okkur
bræðrum. Ég ætla að hafa þetta í tveimur hlutum, núna kemur fyrri
parturinn sem nær yfir fyrsta daginn í þessari mögnuðu ferð.
Á mánudagsmorgun kl. 8:45 í síðustu viku þá lagði lagði ég af
stað á Julian (já það er rétt, ég lagði af stað á Subaru Justy) og
ferðin var heitið í Varmahlíð þar sem ég myndi hitta gamla
(Baldur Má) og halda síðan báðir áfram þaðan á bílnum
hans. Nokkrir félaga minna hlógu að mér þegar maður sagði
þeim að maður ætlaði að fara yfir heiðina á Julian en
viti menn, hann stóð sig eins og hetja og átti ekki í
vandræðum með að bruna í fjórhjóladrifinu í gegnum skaflana á
heiðinni, enda reyndar gríðarlega öflugur bílstjóri við
stýrið.
Allt gekk rosa flott og allt í blússandi góðum málum og
aðeins c.a. 2-3 mínutur í Varmahlíð..... Jebbs, þá kom að því að
Julian kallinn var eitthvað þreyttur og ákvað að fara að sofa
(hann drap á sér).... FRÁBÆRT!!! Með herkjum tókst þó að
vekja hann á ný og drulla honum heim til Baldurs Más.... Góð
byrjun á skemmtilegri ferð.
Frá Varmahlíð var svo brunað beinustu leið til Keflavíkur án
stopps. Á flugvellinum tókum við því svo auðvitað
bara easy. Flogið var svo út kl. 16:00 og lent í London
um áttaleytið að staðartíma. Þegar við lentum var umsvifalaust
hringt í Jóa Trausta en hann var einmitt í London á sama tíma. Hann
svaraði flottur á því og staddur á White Hart Lane að fara að horfa
á sína menn í Tottenham á móti W.B.A. Ákváðum við að heyrast betur
eftir leikinn. Ég og gamli fórum þá að stússast í að koma okkur á
hótelið okkar, en það var smá bras. Að vísu var aðeins stoppað við
á Burger King og fengið sér einn góðann burger fyrst. Eftir það
fórum við í ansi hreint skrautlega lestarferð sem tók u.þ.b. 45
min. Í sætinu við hliðina á okkur í lestinni settist maður sem var
svona vægast sagt frekar nörralegur og tók upp úr töskunni sinni
stærðfræðiblöðin sín og fór að reikna grimmt einhver dæmi. Mér
fannst þetta nú eitthvað spaugilegt og fór að benda gamla á hversu
hallærislegur þessi gaur væri, það var allavega frekar fyndið að
fylgjast með honum, hann hefði passað ágætlega í þættina þarna á
stöð 2: Beauty and the Geek. Gamli ákvað að spyrja þennan félaga
okkar (á ensku) hvort við værum ekki örugglega á leiðinni á
Liverpool Street og hann svaraði: "Já". Við kipptum okkur þó ekkert
við það, þetta bara hlyti að vera nördalegur Englendingur. Það sem
eftir lifði ferðar hélt ég áfram að tala um kappann hversu fyndið
væri að fylgjast með honum og þess háttar (enda bjóst maður nú ekki
við því að hann skildi stakt orð sem maður væri að segja). Ég tók
meira að segja mynd af honum, en hann var ekkert par ánægður með
það og ég tók eftir því að hann var farinn að horfa nokkuð þungum
augum til mín..... Jebbs, auðvitað kom það í ljós í lok
lestarferðarinnar að þetta var Íslendingur..... FRÁBÆRT!!! Vel gert
Andri Snær.......
Þegar loksins var komið upp á hótel var klukkan u.þ.b. 10 og við
frekar tussulegir eftir allt ferðalagið. Við kíktum á fréttirnar í
sjónvarpinu þar sem að sjálfsögðu var nánast bara fjallað um
leikinn sem við vorum að fara á daginn eftir. Þar kom m.a. í ljós
að Ljungberg yrði ekki með sökum meiðsla og einnig Sol Campbell en
Van Persie myndi koma inn í liðið eftir meiðsli. Þó var aðallega
talað um endurkomu Vieira á Highbury, miklar pælingar hvort hann
myndi standast pressuna og slíkt og auðvitað viðtal við hann.
Við bræðurnir hittum svo tvo aðra Íslenska Arsenal dúdda á
hótelinu sem voru komnir í vikuferð tli London og ætluðu
að sjá bæði Juventus leikinn og leikinn á móti Aston Villa
(sem endaði einmitt 5-0 fyrir Arsenal). Þetta voru toppgaurar sem
hétu báðir Biggi, skemmtilegt það. Jói Trausta hringdi svo
afar sáttur í okkur þar sem hans menn höfðu unnið 2-1 og Robbie
Keane skorað sigurmarkið í blálokin. Við ákváðum að hittast og
komu þeir Biggar með okkur. Ferðinni var heitið á einhvern pub sem
var fínt og rólegt, aðallega spilað pool þar sem Jói fór á
kostum vægast sagt. Eftir þetta allt saman var bara farið upp á
hótel í svefn enda mikilvægur leikur daginn eftir.

Staddur á Burger King með fullann munn.

Hér er nörrinn í lestinni sem reyndist svo vera Íslenskur.... Hann
hefði plömmað sig vel í X-inu, það er klárt mál..

Gamli í lestinni.

Jói var seigur í pool.

Hér er Jói með þeim Biggum
Framhald af ferðasögunni mun koma innan tíðar......
Andri Snær
»
22.03.2006 12:47:23 / Andri Snær
Hér eru nokkur dæmi sem eru í virkilegu uppáhaldi hjá mér þessa
dagana:
Sjónvarp: Ég hef nú alltaf horft frekar lítið á
sjónvarp (allavega miðað við Gumma Herm) en þó eru tveir þættir sem
eru í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Fyrst ber
að nefna My sweet fat Valentina sem er einhver sápa frá Chile eða
eitthvað og er sýnt á stöð 2. VÁ, þetta er aðeins of mikil snilld,
það er hægt að hlægja endalaust að þessu, allir leikararnir ofleika
svaðalega, alltaf einhver rifrildi, svik og slagsmál í gangi
og ég veit ekki hvað og hvað. Undir þessu öllu saman er svo ekkert
eðlilega fyndin dramatónlist sem er vægast hallærisleg. Endilega að
kíkja á þetta því þetta er gaman að sjá!
Annars vegar er það að sjálfsögðu Neighbours sem klikkar aldrei,
nenni ekki að skrifa mikið um þá enda kannast allir við fólkið á
Ramsey-Street.
Tónlist: Ég hef nú alltaf hlustað talsvert á
tónlist, hef nokkuð víðan smekk í þeim málum og ipodinn minn er
einn af mínum bestu vinum. En allavega þá er safndiskurinn með
Uriah Heep, sem Stebo lét mig fá um daginn, einhver almesta snilld
sem ég hef nokkru sinni hlustað á. VÁ!!!! Djöfull voru/eru
þeir hrikalega góðir og öll 15 lögin á disknum eru frábær. Ég
vil hvetja alla þá sem ekki kannast við Uriah Heep að prófa að
hlusta á lög eins og Lady in black, Gypsy, Easy Livin og að
sjálfsögðu July Morning (sem er hreinlega eitt allra flottasta og
tilfinningaríkasta lag sem ég hef nokkru sinni hlustað á) og pæla
aðeins í þessari tónlist. Þetta kalla ég sko alvöru tónlist takk
fyrir túkall!
Enda þetta á video með einhverjum sick Þjóðverja sem er
tölvunörd dauðans... Ég þakka fyrir að hafa aldrei haft mikinn
áhuga á tölvum! Þetta er bara rugl, endilega horfiði á þetta
allt. http://b2.is/?sida=tengill&id=151221
Andri Snær
»
16.03.2006 13:22:07 / Andri Snær
Jebbs, þetta er ekkert grín. Ég er að fara á Highbury og það
ekkert á Arsenal-Scarbourogh eða eitthvað þannig.. Ó, nei ekki
aldeilis!
Í morgun gengum ég og eldri bróðir minn, Baldur Már, frá kaupum
á miðum á leik Arsenal-Juventus á Highbury í meistaradeildinni núna
28. mars takk fyrir túkall! Sælir!! Vá hvað ég er fáránlega
spenntur og er búinn að láta eins og æstur krakki í allan dag eftir
að þetta varð ljóst. Shit, Vá, geðveikt, rugl, sturlað, mergjað og
fleiri orð eru búin að fá að flakka síðan í morgun....
Ég var búinn að ákveða þetta fyrir mörgum árum, eða eftir að
ljóst var að liðið myndi fara á nýjan völl sem verður tekinn í
notkun á næsta tímabili, að ég gæti ekki kallað mig Arsenal-mann ef
ég hefði ekki farið á leik á Highbury. Upphaflega ætluðum við Gummi
Troy að fara saman að sjá okkar lið spila á þessum sögufræga velli
en því miður varð aldrei af því. Gummi fór einmitt á
Arsenal-Real um daginn en ég komst ekki með af því að við vorum að
spila í deildinni á sama tíma. Þegar þetta bauðst hins vegar og það
á milli leikja hjá okkur þá var maður ekkert að hugsa sig tvisvar
um og útkoman: Miði á leik Arsenal gegn Juventus! Vá hvað þetta
verður fáránlega geðveikt að sjá mína menn á Highbury, en einnig
verður gaman að sjá Vieira sjálfan spila á sínum gamla heimavelli.
Eitt er víst að ég mun varla púa á hann... Eða hvað? Pæling....
Gamall draumur er að verða að veruleika. Þetta getur ekki
klikkað!
Bið að heilsa, ef þið sjáið mig eitthvað er mjög líklegt að ég
sé skælbrosandi og hress gaur.....!
Andri Snær
»
09.03.2006 15:14:19 / Andri Snær
Það var smá sárabót í gærkvöldi þegar mínir menn í Arsenal
komust áfram í 8-liða úrslitin í meistaradeildinni, djöfull voru
þeir góðir! Þvílík liðsheild segi ég nú bara, allir sem einn
börðust fyrir málstaðinn og útkoman: 8-liða úrslit eftir að hafa
slegið út stjörnuprýtt Real Madrid lið útúr keppninni. Hefur ekki
verið leiðinlegt fyrir Gumma Troy (Arsenal mann, ekki Real mann) að
vera á leiknum og fagna vel í leikslok. En djöfull er Ronaldo
gjörsamlega búinn að missa það, jú Elfar hann er hreinlega orðinn
feitur! Mjög vel orðað hjá einhverjum Arsenal fan sem sagði:
"Now that we're through we can safely say that Ronaldo looks
like he's eaten a life sized chocolate and cream figure of each one
of our team and ultimately history will judge this Real Madrid as
the best group of individuals ever assembled but who simply aren't
and never have been a team."
Til sönnunar verð ég að setja hér inn video, sem ég stal af
síðunni hans Ella Halld, af Ronaldo þegar hann var upp á sitt besta
í Barcelona:
http://video.google.com/videoplay?docid=1787597951335531169&q=Ronaldo
»
01.03.2006 11:49:43 / Andri Snær
Var að koma af fundi með skólameistaranum, Jón Má,
aðstoðarskólameistara, stjórn Hugins, námsráðgjafa MA auk fulltrúa
allra 4. bekkja í skólanum. Ég var þar sem fulltrúi bekkjar míns,
4-T. Ætla ekkert að hafa mörg orð um erindi þessa fundar á
þessari síðu en ég verð þó að segja að ég er mjög ánægður með hann
og vona svo innilega að tekið verði mark á því sem við, fulltrúar
bekkja okkar, höfðum fram að færa á þessum annars ágæta fundi.
Spurning um að halda áfram í þessum efnum og kíkja jafnvel í
pólítíkina? Jaaa.. maður spyr sig....
Enda þetta á svona "nett" hallærislegu tónlistarmyndbandi með
engum öðrum en David Hasselhoff!
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=124
Andri Snær
»
24.02.2006 11:40:20 / Andri Snær
Úff, hvað ég er feginn að vera búinn í skólanum þessa vikuna og
nú tekur við Háskólakynning fyrir sunnan um helgina. Mér lýst afar
vel á þessa ferð, hún getur varla klikkað eins og við félagarnir
erum búnir að skipuleggja hana.
En eitt stórt ÚFF!! hvað það var erfitt að vakna í sundið í
morgun, guð minn góður! Þeir sem þekkja mig vita hversu lengi ég er
í gang á morgnanna og hversu gott mér þykir að sofa. Ég vaknaði
fyrst klukkan 6.28 við vekjaraklukkuna sem ég sló strax í gólfið.
Hélt áfram að sofa. Svo kom pabbi um 6:31 og gerði árangurslausa
tilraun til að koma mér á fætur. Klukkan 6:37 kom svo mamma en
ekkert gekk, ég hélt að sigurinn og svefninn væri minn. En klukkan
6:42 bugaðist ég þegar mamma var mætt aftur að reyna að fá mann á
fætur. Ég bölvaði í hljóði, fór hálfsofandi út í bíl með einn
banana en það var by the way ÓGEÐSLEGA kalt í morgun! Í þokkabót
var ég ekki með linsurnar, en ég fór og náði í Elfar og við
brunuðum niður í sundlaug. Þegar þangað var komið var ég enn ekki
nálægt því að vera fullvaknaður, sem sást kannski best að mér tókst
að klúðra því að læsa skápnum mínum inní klefa (sem á að vera mjög
einfalt). Fékk þó annan skápapening í afgreiðslunni og reddaði
því.
Enn var maður sofandi, þegar maður kom út í þetta ÓGEÐIS frost
og út í laug. Þá komu þær Sonja og Inga sem voru
alveg ótrúlega morgunhressar fannst mér og létu okkur synda
endalaust mikið. Ég ráfaði óvart inná hröðustu brautina en þar
eru einmitt aðallega þvílíkir sundgarpar sem synda fáránlega hratt,
stoppa aldrei, taka þvílíku snúningana þegar þeir koma að
bakkanum (án djóks) og ég veit ekki hvað og hvað. Eins og ég segi
þá var maður ekkert alveg með á nótunum svona snemma morguns og
hélt ég að maður hlyti að vera svona slakur miðað við alla hina
svo ég fór að djöflast og djöflast áfram og það var svo loks í
svona c.a. 27 ferð sem ég vaknaði loks almennilega og fattaði að ég
væri að synda með einhverjum professional sundgörpum og að brautin
sem maður ætti í raun að vera á, var næsta braut!!
Eftir sundið fór maður svo ferskur í skólann, ótrúlega skrítið
að mæta í skólann klukkan 8:00 drulluferskur og hress og sjá alla
hina tínast í skólann drulluúldnir og nývaknaðir...
Ætla svo að enda þetta á öðru videoi með Tyson.. Maðurinn er
náttúrulega mjög heilbrigður!! http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=6
Andri Snær
»
22.02.2006 12:36:20 / Andri Snær
Ég vara ykkur við, ef þið hafið ekki gaman af fótbolta, þá gæti
þessi færsla verið leiðinleg..
Jæja, í dag er ég stoltur og glaður ungur drengur. Get bara ekki
hætt að hugsa um leikinn sem ég sá í gær hjá mínum mönnum,
Arsenal.
Eftir að hafa verið alveg hreint hrikalega slakir í allan vetur
(eru í 5. sæti í deildinni), þá kom leikur leikjanna í gær, Real
Madrid-Arsenal á Bernabau en fyrir leikinn hafði enskt lið aldrei
unnið á þessum velli. Ég verð að viðurkenna að ég var ekkert
sérstaklega spenntur eða vongóður fyrir þennan leik, sérstaklega
þar sem 3 lykilmenn vantaði í vörnina hjá okkur (Cole, Campbell og
Lauren) og í stað þeirra spiluðu 3 óreyndir kjúklingar, þeir
Senderos, Flamini og Eboue. Auk þess er miðjan búin að vera svo
skelfileg í vetur að það hálfa væri nóg, Ljungberg er búinn að vera
ömurlegur allt tímabilið og hefur ekkert gert, Reyes búinn að vera
slakur, Gilberto er ekkert búinn að sjást í allan vetur þó svo að
hann sé alltaf inná að ónefndum Alexander Hleb sem við keyptum á 10
milljónir punda í vetur sem varla hefur hitt sendingu á samherja í
allan vetur. Þeir voru þó allir með í gær sem mér fannst fyrirfram
ekki vænlegt til árangurs, en auk þeirra var Fabregas á miðjunni,
en hann er by the way '87 módel. Frammi var svo að sjálfsögðu
kóngurinn Henry.
Leikurinn var einfaldlega stórkostlega leikinn af hálfu Arsenal
manna. Guð minn góður, ég hef varla séð annan eins fótbolta eins og
boðið var uppá! Það kom varla sending sem var ekki meðfram jörðinni
og það sem þeir gulu hlupu í leiknum! VÁ!!! Ég get ekki annað en
dáðst að þessari frammistöðu gegn Real Madrid og það á þeirra eigin
heimavelli.
Arsenal var sterkara liðið frá upphafi leiksins til enda, ekkert
flóknara en það. Þó svo að Real væri mun meira með boltann sem er
eðlilegt á þeirra heimavelli, þá átti Arsenal mikið mun hættulegri
færi og hefðu alveg þess vegna getað sett tvö mörk til viðbótar á
meðan Real ógnuðu lítið. Hinir ungu og fersku Arsenal drengir voru
bara svo miklu ákafari og áhugasamari heldur en þessar stjörnur í
Real Madrid að það hálfa væri hellings nóg!
Djöfull er ég ánægður með þetta, þarna þekki ég þetta lið sem
var yfirburðar lið fótboltalega séð í Englandi fyrir tveimur árum
síðan! Lehmann er einfaldlega einn sá flottasti og er með endalaust
sjálfstraust, djöfull fíla ég þennan Þjóðverja! Gæti ekki verið
ánægðari með vörnina, þeir einfaldlega stútuðu þessum celebum
frammi hjá Real, þ.e. Ronaldo, Robinho, Babtista, Raul, það skipti
engu þó svo að þessir kjúklingar væru ekki með neina reynslu, þeir
einfaldlega virtust miklu áhugasamari að vinna leikinn heldur en
strikerarnir hjá Real.
Miðjan var ekki síðri, Reyes átti klárlega sinn besta leik í
búningi Arsenal, hljóp endalaust og gerði oftar en ekki lítið úr
Cicinho með hraða sínum og tækni, Ljungberg var duglegur og skapaði
loksins þann usla sem hann á að valda og Gilberto skilaði
varnarmiðju-hlutverki sínu mjög vel. En enn á ég eftir að nefna
Alexander Hleb, guð minn góður af hverju er maðurinn ekki búinn að
spila svona í vetur? Loksins, loksins sýndi hann af hverju Wenger
keypti hann á allan þennan pening, hann var virkilega hreyfanlegur
og skilaði boltanum afar vel frá sér.
Enn á ég þó eftir að tala um tvo af mönnum leiksins, fyrst ber
að nefna Cesc Fabregas. VÁ!!! Shit hvað drengurinn er góður í
fótbolta, er þetta hægt?? Ég meina, gæinn er fæddur árið 1987 og
hann spilar eins og Zidane gerði þegar hann var upp á sitt allra
besta. Drengurinn var ótrúlegur í gær, tæknin sem hann hefur yfir
að ráða er bara bull og vildi ég gjarna sjá
sendingaprósentuhlutfallið hans í leiknum. Fabregas sem verður 19
ára þann 4. maí, yfirspilaði sjálfan Zinedine Zidane fótboltalega
séð í gær, geri aðrir betur!!
Svo er það Henry.. Hvað er málið með hann??? Ég segi bara,
djöfull er hægt að vera góður í fótbolta....
Jæja, svo er það bara seinni leikurinn á Highbury eftir.
Það er bara hálfleikur í þessari fótboltaveislu. Gummi Troy er
einmitt að fara á þann leik, en hann er harður Arsenal maður með
smá Real ívafi..
Ég segi bara, Góða skemmtun Gummi!!
Andri Snær
»
14.02.2006 10:27:50 / Andri Snær
Er búinn að vera að velta einu alvarlega fyrir mér.. Það er það
að breyta nafninu á þessari síðu í blog.central.is/meiddur-junior??
Röggi ertu sáttur við það?? Góð pæling..
En allavega þá er þetta búið að vera ekkert venjulegt með mig í
vetur, ég hef nú hingað til ekkert verið mikið fyrir það
að slasa mig en í vetur hefur það svo sannarlega
breyst.. Hef ég alvarlega á tilfinningunni að ég sé að líta
aðeins of mikið upp til eldri leikmanna í liðinu, eins og
Rögga meidda!
Ég fékk á æfingu í gær minn fjórða skurð í andlitið í vetur sem
ég hef svo þurft að láta sauma eða hefta saman, er það
eðlilegt?? Það er bara febrúar!! Svo er ég lítið búinn að geta
æft handbolta það sem af er árinu útaf
einhverju liðbandi fyrir neðan ökklann á mér sem er í rugli og
ég get ekkert styrkt það með einhverjum sjúkraþjálfaraæfingum, er
bara búinn að vera í nálastungum (sem er ekkert sérstaklega
þægilegt), kælingum og einhverjum svoleiðis skemmtunum upp á
síðkastið. Gaman að því.
Er líka að pæla í að fara að skipta um íþrótt, ég er búinn
að hjóla svo mikið undanfarið (c.a. vegalengd sem samsvarar 3
hringi kringum landið) að það er alveg spurning um að
snúa sér bara að hjólreiðum?? Allavega ætti maður ekkert að slasast
mikið í því...!!
Ætla að enda þetta á meistaranum sjálfum Jim Carrey, þeir sem
ekki hafa séð þetta video með honum verða einfaldlega að kíkja á
þetta: http://hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1
Andri Snær
»
10.02.2006 14:10:24 / Andri Snær
Úff, hvað þetta er búinn að vera ljúfur dagur hingað til. Mér
tókst aftur að vakna í nótt/morgun í sundið, kom svo upp í skóla og
þá var Siggi meistari Bjarklind veikur þannig að ég fór bara í einn
tíma í dag hjá ekki minni snillingi, honum Einari Sigtryggs. Eftir
það var farið í stutta háskólakynningu upp í HA þar sem var troðið
ofan í mann nammi og pizzum, ekki amalegt það.
En hvað er málið með sumt fólk í umferðinni? Sumir vilja meina
að konur og gamalt fólk eigi ekki að vera með bílpróf en ég vil nú
alls ekki taka svo djúpt í árina.. En allavega, þá er ótrúlegt hvað
margir BJÁNAR virðast hafa bílpróf, guð minn góður! Ég keyri
gríðarlega mikið á Julian mínum og það er nánast
undantekningarlaust að maður sjái einhvern keyra í einhverju rugli.
Núna rétt áðan munaði t.d. aðeins örlitlu að ég hefði
hefði keyrt á konu sem kom bakkandi á fullu útúr bílastæðinu sínu í
Hólsgerði (götunni sem ég bý). Konan horfði bara í aðra áttina
meðan hún bakkaði á góðum hraða og datt ekki í hug að líta í
áttina sem hún hefði þurft að líta fyrst í! Ég svoleiðis bombaði á
bremsuna á Julian og rétt náði að redda þessu, flautaði svo á
kellinguna sem hrökk mikið við og varð eins og epli í framan! Vissi
greinilega upp á sig skömmina, en svona lagað fer svo hrikalega
mikið í taugarnar á mér! Úff..
En já, annars eru ég og Stebbi G loksins búnir að finna hvað við
eigum að láta ofvirku strákana sem við erum að þjálfa í
5.flokknum fá í næsta keppnisferðalagi til að fá þá í svefn. Sjá
hér:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=190
Andri Snær
»
08.02.2006 10:49:04 / Andri Snær
Sigurður Bjarklind er einhver allra mesti snillingur sem ég hef
á ævi minni kynnst! Þvílíkur meistari þessi maður! Hann er að kenna
mér líffærafræði og efnafræði núna á þessari önn og ég verð bara að
segja það hér að slíkir meistarar finnast klárlega ekki á
hverju strái.
Hér er svo gamalt viðtal við annan meistara sem er pínu freðinn,
tékkið á þessu:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=421
»
07.02.2006 11:21:49 / Andri Snær
Jæja, ekki get ég nú sagst vera mesti aðdáandi Júróvision en nú
er allt búið að vera nötz útaf þessu Silvíu Nótt dæmi í undankeppni
Júróvision. Ég bara verð að segja eins og er að þetta er eitthvað
sem við megum ekki stoppa! Ég meina, auðvitað voru reglur brotnar
og allt það, en nú er það líka í umræðunni að önnur lög í keppninni
hafi einnig "lekið" inn á netið..
Hafið þið tekið eftir því að einn helsti Júróvisionslagara
höfundur okkar Íslendinga, hann Þorvaldur Bjarni samdi lagið og að
Sigga gamla Beinteins er í bakröddunum?? Og svo tengist Selma
Björns víst eitthvað þessu lagi.. En af hverju ætli þau séu að taka
þátt í svona skrípaleik hafa örugglega margir spurt sig..
Jú málið er nú bara það held ég að núna loksins hafa þetta
fólk áttað sig á því að pumpa þetta annars steingelda
Júróvision dæmi okkar Íslendinga almennilega upp með þessu
svakalegu flippi sem þetta lag er. Botnleðja gerði tilraun til að
flippa þetta svolítið upp fyrir þremur árum en þá hafði þjóðin ekki
kjark til að hrista upp í þessari keppni sem er alltaf eins ár
eftir ár. Það er 100% að þetta getur vakið gríðarlega athygli að
senda Silvíu þarna út og gefa þar með nett frat í þessa keppni.
Margir muna nú eftir gaurnum frá Austurríki um árið sem var
náttúrulega bara tóm steypa og flipp, en ef ég man rétt kunnu
margir að meta það og lagið endaði í 5. sæti! En auðvitað þarf
eitthvað fólk að vera á móti þessu og drulla yfir þetta dæmi og
vilja fá eitthvað annað í staðinn. En, hvað á svo sem að koma í
staðinn spyr ég?? Kannski lag númer 2 þarna á laugardaginn? Eitt
stórt ÚFF við því eins og flestum lögunum þarna í þessari
keppni.
Kommon, drullum yfir þessa keppni með því að senda Silvíu Nótt
út í Júróvision! Annað væri bara hneisa!
Hægt er að hlusta á lagið hér:
http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.html#link_to_friend
Andri Snær
»
03.02.2006 12:26:11 / Andri Snær
Ég vaknaði í morgun klukkan 6:30..... Ástæða??
Jú ég er sem sagt í skólasundi kl. 6.50 alla föstudagsmorgna á
þessari önn ásamt fleiri góðum mönnum, sbr. Ragga Njáls, Hólma,
Ella Halld (sem tókst að vísu ekki að vakna í morgun þrátt fyrir
heiðarlega tilraun) og fleiri.. En það er þó ekki svo að við
ákváðum sjálfir að fara í þessa hressilegu sundtíma á
föstudagsmorgnum heldur er ástæðan afar einföld, okkur tókst að
falla í íþróttum á síðustu önn takk fyrir túkall! Já, það er rétt,
við féllum í íþróttum, þrátt fyrir að æfa 6-8 sinnum í viku ásamt
því að keppa leiki um helgar..
En þótt ótrúlegt meigi virðast þá er þetta alls ekkert alslæmt..
Af einhverjum ástæðum virðist ég eiga auðveldara að vakna kl. 6.30
heldur en eftir klukkan 7.. Þeir sem þekkja mig vita vel hvernig ég
er á morgnanna (frekar mjög lengi í gang) og hversu gott mér þykir
að sofa. En ég verð að segja að mér finnst ekkert að þessu einu
sinni í viku, en það mætti ekkert vera mikið meira en það held
ég...
Annars er komið út myndband frá feministum sem sýnir hvernig
konur eiga auðveldara með að komast langt í þjóðfélaginu.. Tékkið á
því hér
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=326
Andri Snær
»
31.01.2006 20:43:42 / Andri Snær
Jæja, ég er ekki alveg dauður í blogginu. Vil samt benda fólki á
síðuna www.blog.central.is/garparnir þar
sem við nokkrir félagarnir grillum og ruglum í liðinu. Gaman að
því.
En já það er allt ágætt að frétta af mér, nenni nú ekkert að
vera að fjalla mikið um hvað maður hefur verið að brasa undanfarið
eins og versti gelgjubloggari..
En annars er allt að verða nötz í þjóðfélaginu meðan
landsliðið er að brillera svona allsvaðalega en þetta er bara tær
snilld. Sigurinn á Rússum í dag gæti verið upphafið af einhverju
verulega stóru held ég, en þetta var fyrsti sigur okkar á Rússum á
stórmóti sem verður að teljast svakalega gott, reyndar þó svo að
Rússarnir virka ekki eins öflugir og undanfarin ár.
Allavega var þetta hindrun sem við höfum aldrei yfirstigið þar
til nú og allt í einu eru einfaldlega allir vegir færir, ekkert
flóknara en það. Það jákvæðasta við þetta allt saman er að það
virðist vera smá heppni sem er að fylgja okkur, en það er algjört
möst í svona stórri keppni. Dæmi um það er t.d. ákveðnir dómar í
dag sem féllu okkur svakalega í hag að mínu mati, en ég held að ég
getu fullyrt að ég hafi aldrei séð Viggó jafn rólegan í leik og með
engan skæting við dómarana. Annað dæmi er svo sigur Króata á Dönum
sem var okkur afar hagstætt, en sá sigur vannst á marki í
blá-restina. Það er vonandi að þessi heppni fylgi okkur áfram, því
þá er einfaldlega allt hægt, ekkert flóknara en það.
En jæja, ég allavega er búinn að virkja síðuna á ný, spurning
hvað það endist....
Enda þetta á flottu marki í fótbolta....
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1112
Andri Snær
»
Síður: 1 2 3
|
|